Bakaður silungur

Bakaður silungur
  • salt og svartur pipar
  • 800 g silungsflök
  • 100 g vorlaukur
  • 100 g haricot baunir
  • 2 msk graslaukur
  • 100 g fetaostur

Aðferð:

Smyrjið eldfast mót, raðið silungsflökunum í og kryddið með salti og svörtum pipar.  Stráið yfir fínt skornum vorlauk, haricot baunum, gróf söxuðum graslauk og fetaost.   Bakað við 180°C í 10-15 mínútur.