Appelsínu döðlubrauð

  • 3 desilítrar mjólk
  • 50 grömm smjör
  • 3/4 desilítrar síróp
  • 350 grömm hveiti
  • 3 teskeiðar lyftiduft
  • 1/2 teskeið salt
  • 75 grömm sykur
  • 50 grömm valhnetur, saxaðr gróft
  • 100 grömm döðlur saxaðar gróft
  • 2 matskeiðar þurkaður appelsínubörkur, saxaður


Hitið saman mjólk, smjör og síróp þar til smjörið er bráðnað. Sigtið saman hveiti og lyftidufti og bætið sykri salti og ávöxtum saman við. Hrærið heitri mjólkurblöndunni vel saman við hveitiblönduna með sleif. Látið í vel smurt mót og sléttið yfir með blautri sleif. Bakið við u.þ.b 180 gráður í 35 – 40 mínútur. Skerið brauðið þunt og berið fram með smjöri.
vefuppskriftir.com