Minstrels smákökur

u.þ.b. 50 stykki

  • 1 dl flórsykur
  • 200 gr smjör
  • 1 dl kartöflumjöl
  • 4 dl hveiti
  • 1 pakki Minstrels (225 gr)

1. Blandið saman flórsykri, smjöri, kartöflumjöli og hveiti og hnoðið.
2. Mótið litlar kúlur úr deiginu og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
3. Setjið Minstrels á hverja köku og bakið í miðjum ofni við 175°c í u.þ.b. 8-10 mínútur.