Reyniberjahlaup

Einfalt og spennandi
Fann þessa í fréttablaðinu, og set hana óbreytta hér. Mig langar mikið að prufa þetta með t.d. rjúpu, gæsabringum eða annari villibráð.

  • 2 lítrar reyniber
  • 500 g epli (jónagold eru bragðmikil og rík af hlaupefni)
  • 7 1/2 dl vatn
  • 9 dl sykur á móti 1 l af saft

Yfirleitt eru það örlög reyniberja að verða fæða fuglanna en þó ekki fyrr en þau hafa frosið því þá breytist nefnilega bragðið til hins betra. Auðvitað þurfum við ekki að bíða eftir frostnótt eins og fuglarnir heldur getum tínt berin hvenær sem er og sett þau í frysti fyrir notkun. (úr Fb.)
Vatnið er sett fyrst í pottinn og látið sjóða. Berin eru sett út í með stilkunum og eplin skorin gróflega niður. Nauðsynlegt er að kjarnahúsin séu höfð með, hleypisins vegna, ásamt hýðinu. Allt látið sjóða rólega í um það bil 20 mínútur eða þangað til allt er komið í mauk. Nota má kartöflupressu til að allt fari í smátt. Hellt á þétta síu, til dæmis hreina diskaþurrku og lögurinn látinn renna í ílát. Hann er síðan mældur og 9 dl af sykri settur í hann á móti hverjum lítra af leginum. Soðið aftur við hægan eld í 15- 20 mínútur eða þar til dropi stífnar á kaldri skeið. Áríðandi er að krukkurnar séu hreinar og heitar þegar hlaupinu er hellt í. Lokið er sett á meðan það er heitt.