Ýmis húsráð

Birt algjörlega án ábyrgðar
en þetta kom í tölvupósti og fær að fljóta með til gagns og gamans.

Setja dash af mýkingarefni út í vatnið þegar er verið að þrífa rúður
Setja edik út í vatnið þegar er verið að þrífa baðflísarnar
Látið 2-3 tsk af matarsóda standa í opnu íláti í ískáp og þið losnið við
alla lykt úr honum!
Ef börnin eru að perla og perlurnar fara út um allt þá er bara að skella
nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurnar upp, taka sokkin og tæma í
perluboxið.
Til þess að þrífa skýjaða blómavasa er gott að fylla þá af vatni og setja
fullt af salti og þá verða þeir aftur glærir og fínir
sítrónudroparnir eru góðir til að ná upp límmiðaklessum
Gott ráð til að pússa silfrið. Sjóðið vatn og hellið í bala, setjið
álpapparsræmur út í og smá dass af matarsóda og hendið síðan silfrinu útí.
Svo er um að gera að slaka á meðan silfrið hreinsast sjálft, ekkert
pússerí og vesen.
Bílabón á flísarnar á baðinu, halda glansanum í ár
Sítrónudropar eru líka góðir til að ná límklessum úr hári þegar verið er
að föndra
Ef lím eða vax fer í fötin, setjið dagblað yfir blettinn og straujið yfir
á lágum hita, nær öllu úr.
til að ná grasgrænku úr fötum, hellið nýmjólk í blettinn og svo
uppþottarlegi og nuddið saman
Fitublettir, hellið kóki í blettinn (passa það sé gos í kókinu) og látið
liggja í c.a. mínútu og svo beint í þvottavélina.
til þess að láta krómaða hluti sem eru orðnir ryðgaðir verða aftur krómaða
þá nota kók og álpappír.
Til þess að fá gljáa á parket er best að skúra upp úr Lúx spæni (eins og
maður notar við að handþvo flíkur). Eftir 2-3 skipti er parketið komið með
rosalega fallegan gljáa
Tannkrem á silfur, nudda og skola svo með köldu vatni. Tannkrem á
pennastrik og liti á veggjum þrífa það svo af með blautri tusku.
uppþvottalög á fitubletti í fötum eins og td eftir smjör, Nudda
uppþvottaleginum í og láta hann liggja á í smá stund og smella þessu svo í
þvottavélina
Edik er sótthreinsandi t.d. Er líka lyktareyðandi, blandaðu borðediki
við vatn og stjúktu innan úr skáp með vondri lykt, eða helltu því í dýnu
sem er vond lykt af, eða leggðu illa lyktandi í bleyti eða settu smá edik
í þvottvélina Það má þrífa flest allt með ediki, gólf þurrka af…. name it! Mjög
gott að láta smá dry edik í skál og inní ískáp. Eins að strjúka innan úr
ískápnum með ediki til að losna við vonda lykt. Edik lyktin fer síðan á
örskotstundu, en hún tollir í tuskunni svo ef þér líkar lyktin illa, hentu
þá tuskunni í þvott!
Matarsódi: Blandar honum við örlítið vatn og þú er komin með lang, lang
besta ræstikremið! Hann er líka lyktareyðandi.
Mýkingarefni: Er afrafmagnandi og stórsniðugt til þess að m.a strjúka af
rimlagardínum og rafmagnstækjum! Blandið mýkingarefninu við vatn og vindið
tusku uppúr því.
Kartöflumjöl: Dregur í sig vökva/raka. Ef það er raki í skáp eða dýnu
settu kartöflumjöl. Ef þú ert með brunninn bossa eða hlaupubólurass, settu
þá á það kartöflumjöl. Til að ná litum af vegg: tannkrem og naglabursti.
Gott er að vera í gúmmí hönskum. WD-40 hefur líka virkað vel.
skera sveppi.. bara skella þeim í eggjaskerann
Hvítir sokkar verða alveg skjannahvítir ef þeir eru soðnir í vatni með
nokkrum sítrónusneiðum. Sítrónan er náttúrulegt bleikiefni. Sápuduft fyrir
UPPÞVOTTAVÉLAR gerir líka sokkana alveg hvíta