Mexókó súpa Heiðu

  • 2 laukar
  • 4-5 hvítlauksrif
  • 2 msk olía
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • 1 teningur kjúklingakraftur + hálfur lítri vatn
  • 1 tengingur nautakjötskraftur + hálfur lítri vatn
  • 1 lítri tómatdjús
  • 1 msk kóríander
  • 1 og hálf teskeið chili duft
  • 1 og hálf tsk cayenpipar


Laukur og hvítlaukur steiktur í olíunni í stórum potti svo öllu hinu blandað saman við
Látið malla í 2 tíma smakka til og krydda eftir smekk. 1 grillaður kjúlli tekin af beininu og settur saman við ca hálftíma fyrir framleiðslu
Svo setja sýrðan tjóma, nachos og os þegar súpan er borin fram 🙂