Kanilepli

  • 2 epli
  • 60 g sykurlaus sulta (Dalfour)
  • 40 g smyrja
  • 1 tsk vanillukorn
  • 2 tsk kanill
  • smá sítrónusafi
  • 250 g sýrðurrjómi

Skrælið eplin og skerið í litla bita. Setjið í eldfast mót ásamt sultunni og sítrónusafanum. Bakist við 200° í ca 15 mín.
Hrærið saman smyrju, kanil og vanillukornum og hellið yfir eplin þegar þau eru tekin úr ofninum.
Sýrður rjómi er hrærður og settur yfir eplin, stráið smá kanil yfir.


Þetta er uppskrift fyrir 2 að HOLLUM en ótrúlega góðum eftirrétti eða kvöldsnarli