Teriyaki kjúklingaleggir

  • Kjúklingaleggir – ca. 12 til 20!!!
  • 1 flaska teriyaki sósa
  • 2 þumlungar ca. ferskur engifer
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 stk vorlaukur
  • 1 sítróna
  • Hrásykur eða hunang – verður að smakkast til
  • 1 rauður ferskur chili pipar
  • 1 tsk sesam olía
  • Koriander, alveg heill hellingur, niðurskorið


Skera engifer smátt eða rífa á rifjárni. Saxa niður hvítlauk eða pressa í hvítlaukspressu. Skera niður smátt engifer, hvítlauk og chili (muna að taka fræin úr chili piparnum).
Skera hvíta hlutan af vorlauknum smátt niður, en græna hlutan gróft
Blanda saman teriyaki, pressaðri sítrónu, sykri, sesamolíu og blanda í engiferi, hvítlauk og chili pipar. Nugga þessu vel inn í kjúklinginn og láta standa allavega í hálf tíma.
Setja í ofnfast fat og strá yfir vorlauk en bara hvíta hlutanum, baka í 200 gr. í ca. 40 mín. Passa að vökvinn hverfi ekki alveg, setja þá álpappír yfir ef þarf.
Strá svo koriander og græna hlutanum af vorlauknum yfir.
Þetta getur ekki klikkað!!!
(ég hef notað heilt búnt af koriander og ca. eina matskeið af hunangi, en þetta fer eftir smekk)