Graskerssúpa

  • 5 bollar vatn
  • 4 bollar grasker eða Butternut squash í bitum hýðislaust
  • ½ Blaðlaukur (púrra) í sneiðum
  • 2 tsk jurtakraftur
  • 1 tsk turmerik


Sjóðið saman grasker og vatn í 20 mínútur. Maukið graskerið með töfrasprota og kryddið súpuna með jurtakrafti og turmerik. Bæta púrrunni út í og sjóða saman í 5 mínútur. Þeir sem vilja geta bætt smávegis af sýrðum rjóma, rjóma eða kókosmjólk í súpuna.