Silungur með spínati og sætri kartöflu

  • Tvö silungsflök
  • 1 sæt kartafla
  • 1/2 poki spínat
  • 1/2 dós kókosmjólk
  • 1 tsk rautt karrímauk
  • 1 msk fiskisósa
  • safi af 1/2 límónu
  • 1 tsk Agave sýróp
  • pipar
  • ólífuolía


Smyrjið eldfast mót með olíunni og raðið spínatinu í botninn.
Silungsflökin sett ofan á spínatið og salti og pipar stráð yfir.
Sæta kartaflan flysjuð og skorin í strimla og sett jafnt yfir réttinn.
Kókosmjólk, karrímauki, fiskisósu, límónusafa og Agave sýrópi blandað saman í skál. Sósunni hellt yfir réttinn og bakað við 200 gráður í 25-30 mínútur.
Gott með salati og hrísgrjónum.