Sweet chilli fiskur

Fiskréttur

  • Fiskur (ýsa eða þorskur)
  • Kjúklingakrydd
  • Sweet chilli sósa
  • Feta ostur

Meðlæti

  • Couscous
  • Mexíkóostur
  • paprika


Fiskréttur
Fiskurinn skorinn í bita (magn fer eftir fjölda þeirra sem eru í mat) og bitarnir lagðir í eldfast mót. Kjúklingakryddi er stráð yfir fiskinn og svo chilli sósu hellt yfir, ekki of mikið því hún getur verið sterk. Feta osti stráð yfir og örlítið af olíunni úr honum einnig hellt í eldfasta mótið.
Bakað í ofni við 180°C í ca 20 mín.
Meðlæti
Sjóðið vatn og hellið yfir Couscousið. Mexíkóosturinn og paprikan saxað smátt og hrært saman við.
Couscousið er sett sem “beð” á diskinn og fiskurinn settur ofaná.