Brauðréttur með rækjum og Camenbert
- ¾ af niðurskornu brauði
 - 1 lítil dós mæjónes
 - 1 dós sýrður rjómi
 - 1 stór dós ananas í bitum
 - 500 gr rækjur
 - Sítrónupipar
 - Camenbert ostur
 - Vínber
 - Paprika
 
Rífið brauðið niður án skorpunnar og setjið í skál. Blandið saman mæjónesi, sýrðum rjóma, sítrónupipar, rækjum, ananassafa og -bitum. Þessu er hellt yfir brauðið og skreytt með Camenbertosti sem skorinn hefur verið í bita, vínberjum og papriku.
Gott er að gera réttinn kvöldinu áður en á að borða hann.
You must be logged in to post a comment.