Amerískar súkkulaðibitakökur

  • 1,25 bolli hveiti
  • 1 tesk. matarsódi
  • ½ tesk. salt
  • ½ tesk. kanill
  • 1 bolli smjör
  • 3/4 bolli sykur
  • 3/4 bolli púðursykur
  • 2 egg
  • 1 tesk. vanilludropar
  • 3 bollar haframjöl
  • 340 g. brytjað súkkulaði, best að nota gott ekta súkkulaði

Smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar er þeytt saman og þurrefnunum (nema haframjöli) bætt smám saman úti. Að lokum er haframjöli og súkkulaði blandað útí degið. Sett með teskeið á bökunarplötu (með pappír) þarf að hafa gott bil á milli því þær renna út. Bakað við 200 gráður í 8 mín, alls ekki lengur! þær eiga að vera mjúkar!
Fengið að “láni” hjá henni Rebekku



1 thought on “Amerískar súkkulaðibitakökur”