Pasta m ostasósu

  • 250 g tortellini m kjötfyllingu
  • 4-5 tómatar
  • 175 g sveppir
  • 400 g tortellini
  • 200 g ostur
  • 100 g dalayrja
  • 180 g rjómaostur m kryddjurtum
  • 2 1/2 dl matreiðslurjómi
  • 1/2 dl mjólk
  • 100 g beikon
  • krydd eftir smekk


Sjóðið pastað e. leiðbeiningum
Rífið ostinn og skerið Dalayrjuna í bita. Hitið rjóma og mjólk í potti og setjið ost, Dalayrju og rjómaost út í og hitið í 2-4 mín., eða þar til sósan þykknar.
Kryddið sósuna eftir smekk. Skerið beikonið í bita og steikið á þurri pönnu. Blandið beikoninu saman við sósuna.
Skammtið pasta á diska, hellið sósunni yfir og stráið saxaðri steinselju yfir ef vill.