Einföld ostakaka

Botn

  • 1 pakki Frón hafrakex
  • 100 gr smjör

Fylling

  • 1 peli rjómi
  • 1/3-1/2 dós hreinn rjómaostur
  • 2 dl flórsykur


Smjör brætt í potti og hafrakexið mulið út í smjörið, þessu þrýst í botninn á eldföstu móti og bakað í 10 mínútur við 200°c.
Rjómaosti og flórsykri hrært vel saman þangað til blandan verður mjúk, rjómi þeyttur, þessu blandað svo vel saman og sett ofan á kældan botninn.
Það er best að geyma ostakökuna í sólarhring áður en hún er borin fram