Fylltar kjúklingabringur
- 4 kjúklingabringur
- 1/2 poki spínat, eða um 150g
- 2 msk. góð ólífuolía
- 4 msk. Dukkah
- 5 msk. fetaostur í olíu
Steikið spínatið á pönnu í örlítilli olíu þar til það er mjúkt. Kreistið úr því mesta safann og blandið fetaosti og dukkah saman við (stappið til að þetta verði svolítið maukkent). Skerið vasa á bringurnar og setjið fyllinguna í. Gott er að loka sárinu með tannstönglum svo fyllingin leki ekki út.
Penslið bringurnar með olíu af fetaostinum og stráið örlitlu salti yfir (við slepptum þessu og það kom alls ekki að sök).
Setjið bringurnar í 180c heitan ofn og bakið í 20-25 mín., fer eftir stærð.
Gott er að setja 2-3 fetaostbita og strá dukkah yfir hverja bringu í lokin á eldunartímanum og setja grillið á í smá stund (slepptum þessu líka, en ég prufa þetta sko næst).
Berið fram með risotto eða ofnbökuðum kartöflubátum (við notuðum kartöflubáta og krydduðum þá með nutmeg, karrý og salti, það var ‘bjúttifúll’ 🙂
You must be logged in to post a comment.