Hunangsgljáð önd

Hunangsgljáð önd fyrir 4 til 6

  • 1 Önd
  • 1 dl hunang
  • salt pipar
  • 1 ½ dl appelsínulíkjör
  • 1 dl appelsínusafi
  • 1 msk fínt saxaður appelsínubörkur
  • 120 g smjör ( lint)


kryddið öndina með salti og pipar og setjið í ofnskúffu (snúið brjóstinu niður) í 150°c heitan ofn í penslið öndina á annað slagið með hunangi. Þegar öndin er búin að vera í ofninum í 25 mín er henni snúið við og hitin hækkaður í 175°c, haldið áfran að pensla með hunangi og steikið í u.þ.b 35 mín í viðbót.Látið öndina standa í 10 – 15 mín áður en hún er borin fram. Hellið 5 dl af vatni í ofnskúffuna og skafið vel upp úr botninum hellið í gegnun sigti í pott, fleitið mestu fituni ofan af og sjóðið vökvan niður um 1/3 . smakkið til með salti ,pipar, appelsínusafa og líkjör sjóðið vel áfram og hrærið þá smjörinu og berkinum út í og berið fram strax með pönnusteiktum kartöflum nýsoðnu grænmeti og eplasalati .
Friðrik V