Ofnbakaður fiskur m/tómötum og parmesan

(fyrir 4)
Hráefni:

  • 300 gr. pasta
  • 600 gr. þorskur eða ýsa
  • 3 tómatar
  • 2 msk brauðrasp
  • 2 msk parmesanostur
  • 2 msk steinselja
  • 2 msk ólívuolía
  • Salt og pipar


Hitið ofninn í 175°c. Skerið fiskinn og raðið í eldfast mót. Kryddið með salti og pipar.
Skerið tómatana í bita og raðið ofan á fiskinn.
Blandið saman rifnum parmesanosti, brauðraspi, saxaðri steinselju og ólívuolíu. Smyrjið blöndunni ofan á tómatana.
Bakið í ofni í 15-20 mínútur.
Sjóðið pastað svk. leiðbeiningum á pakka og berið fram með fiskinum.