Hjónabandssæla
- 200 gr. smjör
- 1 dl. agave sýróp (eða hlynsýróp)
- 1 egg
- 280 gr. heilhveiti
- 150 gr. haframjöl
- 1 tsk. matarsódi
- 1 krukka St. Dalfour sulta
Smjöri og sýrópi hrært saman þar til létt og ljóst. Egginu bætt útí og hrært áfram. Þurrefnunum blandað saman við og hrært vel saman. Deiginu skipt í 3 hluta. 2/3 þess þrýst í smurt lausbotnaform. Sulta sett yfir. Restin af deiginu mulið yfir.
Bakað í um 30 mín. við 200°C eða þar til kakan er orðin ljósbrún á lit.
heilsubankinn.is
You must be logged in to post a comment.