Ritz-kjúklingaréttur

  • 1 ferskur Kjúlli (þyngd fer eftir fjölda og aldri þeirra sem borða)
  • 1 Ritz-kexpakki (eða eftir smekk)
  • Smjör
  • Sterkur ostur


Kjúklingurinn er hlutaður niður (eða keyptur í bitum). Ritz-kexið sett í poka og mulið vel með kökukefli. Smjörið brætt í potti og kjúklingabitunum velt upp úr því. Síðan er þeim velt upp úr kexmulningnum.
Bitarnir því næst settir í eldfast mót og mikið af rifnum sterkum osti dreift yfir. Þetta er bakað í 50 mínútur við 200 gr.C og er borið fram með hrísgrjónum og sojasósu eða karrysósu með laukbitum og fersku salati.