Hálfmánar
- 500 g hveiti
- 300 g smjörlíki
- 200 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 2 tsk. hjartarsalt
- vanilludropar
- rabarbarasulta
Smjörlíki mulið saman við þurrefnin.
Eggi og vanilludropum bætt við.
Deigið er síðan hnoðað uns það er slétt og sprungulaust.
Gott er gott að láta það bíða í kulda yfir nótt.
Deigið er nú flatt út og mótað í kökur ca. 6-8 cm í þvermál, gott að nota glas.
Sulta látin á miðju hverar köku og þær brotnar til helminga og brúnum þrýst saman.
You must be logged in to post a comment.