Hollar hafrakökur

  • 2 dl lífræn ólífuolía eða kókosolía
  • 2 dl agave sýróp
  • 1 egg
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk vanilluduft
  • 1 1/4 b spelt, t.d. gróft & fínt til helminga
  • 1/2 tsk salt
  • 3 1/2 b haframjöl
  • 5-6 msk vatn eða appelsínusafi
  • 1 tsk kanill
  • (1 b rúsínur)
  • 3/4 b heslihnetur, saxaðar


Aðferð
Setjið olíu, sýróp, egg & vanillu í blandara & blandið saman, hellið blöndunni í skál, bætið spelti, lyftidufti & salti útí & hrærið vel saman. Bætið haframjölinu útí & blandið vel saman. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu & setjið kökurnar á með því að nota teskeið, gott að ýta létt á með bakhliðinni á teskeiðinni til að gera þær flatari.
Bakist við 180 – 200°C í um 12 – 15 mín
Tilbrigði
Setjið kalt kaffi eða kornkaffi í staðin fyrir vatn/appelsínusafa, sleppið rúsínum & hnetum & setið 70% súkkulaði í staðin…. þá eru þetta orðnar að dýrindis smákökum.
er.is