Kjúklingaréttur Jöggu

  • Bringur
  • Kjúklingakrydd
  • Harður ostur (t.d. piparostur)
  • Rautt pestó
  • Rifinn Mozzarella ostur
  • Sveppir, laukur og paprika eða annað grænmeti t.d. paprika, spínat og zucchini
  • Rjómi


Bringurnar kryddaðar með kjúklingakryddi (arabískt frá pottagöldrum er gott), skornir í þær vasar og sneiðum af osti stungið inn í.
Bringurnar brúnaðar á pönnu, settar í eldfastmót og rauðu pestói smurt yfir.
Grænmetið svissað á pönnu og sett ofan á bringurnar.
Slatta af rjóma hellt meðfram bringunum og bakað í ofni á 180°c í 30-40 mín.
Borið fram með hrísgrjónum og salati.