Skinkuhorn Sollu

  • 100 gr. smjör/smjörlíki
  • 900 gr. hveiti
  • 60 gr. sykur
  • 1/2 tsk. salt
  • 1/2 lítri mjólk
  • 1 pakki þurrger (ötker)

Fylling:

  • 1 pakki/túpa skinkumyrja /eða beikonsmurostur
  • ostur og skinkubitar

Penslun :

  • mjólk og sesamfræ


Blandið saman þurrefnunum. Hitið mjólkina rétt volga 37 gráður.Bræðið smjörlíkið í potti og bætið við mjólkina (má líka bræða í örbylgjuofni smjörlíkið og bæta í mjólkina en passa að hitastigið sé ekki of mikið). Hellið mjólkinni saman við þurrefnin og hnoðið.Gott að skella í hrærivélaskál (Kichen Aid eða annað og nota hnoðarann). Látið lyfta sér í 40-60 mín. á volgum stað (viskustykki yfir deiginu) Hnoðið aftur og látið lyfta sér í 30 mín. Skiptið deginu í fimmm hluta. Hvern hluta á að fletja út í hring og skipta í 8 hluta (alveg eins og gert er með pizzur) setja ca. 1/2 – 1 tsk af skinkumyrju á hvern hluta og rúlla upp í horn.Má setja saman við skynkumyrjuna skinkubitum og rifnum osti. Pensla með mjólk og strá fræum ofan á (má sleppa). Bakist við 200 gráða hita þangað til hornin eru orðin ljósbrún ca. 20 mín.
ps. Skinkumyrjan eða beikonostur gerir rosamikið, skinkuhornin verða meira djúsí
ps. Sumir setja smá Dijon sinnep í staðinn fyrir Skinkumyrjuna og svo skinku og ost og er það líka gott.
ps. Þú getur líka notað þessa uppskrift í kanilsnúða eða pizzasnúða /pepperoni og skinka + ostur og rúllað upp.