Frosið te

Vatn hitað og te sett úti en þarf að vera þrefalt sterkara en venjulega! Teið hitað í 3-5 mínútur og svo sykur og sítróna sett útí eftir smekk. Klakkar settir í há glös upp að 2/3 af glasinu og teinu hellt yfir. Útaf sjokkinu sem teið verður fyrir þegar það snertir klakana helst litur, ilmur og bragð tesins frekar en venjulega! Frosið te er mjög góður grunnur fyrir aðra drykki, sem dæmi með ávaxtasafa, ávöxtum og áfengum drykkjum.


Uppskrift barst í gegnum facebook.
Sendandi: Bjarney Lea Gudmundsdottir