Jafningur
- 50 g smjörlíki
- 50 g hveiti
- 1 l mjólk
- 1/2 tsk. salt
- 1-3 msk. sykur
- ögn hvítur pipar
Bræðið smjörlíkið í potti, hrærið hveitinu saman við, þannig að úr verði smjörbolla. Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel á meðan. Kryddið með salti, sykri og pipar. Borið fram ýmist sem sósa eða soðnar kartöflur settar útí og borið fram með t.d. hangikjöti.
You must be logged in to post a comment.