Fylltar grísalundir
- 2-3 grísalundir
- 200 g gorgonzola- eða gráðaostur
- mjúkar döðlur
Best er að blanda döðlunum og gráðaostinum saman í matvinnsluvél. Gerið holu/gat í grísalundirnar eftir endilöngu. Fyllið með döðlu- og gráðaostamaukinu (best er að setja fyllinguna í sprautupoka og sprauta henni inn í lundirnar). Lokið gatinu með tannstöngli. Byrjið á því að grilla við mikinn hita til að fá fallegar grillrákir í kjötið. Færið síðan kjötið upp á efri grindina og grillið við vægan hita í u.þ.b. 15-20 mínútur.
Berið fram með grilluðu grænmeti og bökuðum kartöflum.
You must be logged in to post a comment.