Indverskur chilli kjúklingur

  • 1 kg beinlaus kjúklingur (skorinn í litla bita)
  • 2 laukar (meðalstórir)
  • 3-4 tómatar
  • 3-4 ferskt chili (brytjað smátt)
  • 3 dl rjómi ( eða gríska jógúrt þá er þetta orðið meinhollt )
  • 1 tsk salt
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 1cm engiferrót
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk coriander
  • ½ tsk karrý duft
  • 1 tsk garam masala
  • ½ tsk chilli duft
  • 2-3 msk steiktur laukur (notist ef sósan er þunn)
  • 1 dl olía


Byrjið á því að skera laukinn smátt. Setjið hvítlauk, engifer og tómata saman í matvinnsluvél og maukið.
Setjið olíu á pönnuna og steikið laukinn í olíunni þangað til hann er orðinn gylltur á litinn og mjúkur. Þá er maukinu bætt út í og það látið malla í tvær mínútur.
Kjúklingurinn er settur úr í á þessu stigi málsins. Þegar kjúklingurinn er farinn að hvítna má bæta kryddinu út í, eða öllu nema ferska chilli piparnum. Látið þetta malla í sirka fimm mínútur og hrærið stöðugt í pottinum á meðan.
Lækkið hitann og bætið rjómanum og ferska chillinu saman við. Hræði vel saman og látið malla í þrjár til fjórar mínútur.
Ef sósan er ekki þykk þá má bæta steiktum lauk saman við. Lækkið hitann ennþá meira og setjið lok á pönnuna og látið réttinn eldast í fimm mínútur til viðbótar.
Berið fram með hrísgrjónum og salati.
Rétturinn inniheldur mikinn hvítlauk og mikið af ferskum chilli pipar. Hvítlaukur er klárlega pensillín fátæka og getur komið í veg fyrir kvef, flensu, lækkað blóðþrýsting og vörn gegn hjartasjúkdómum.