Rommkúluís

  • 6 egg
  • 1/2 bolli sykur
  • vanillusykur/dropar eftir smekk
  • 2 pelar rjómi
  • 100 gr Rommkúlur


Skiljið 2 egg og takið hvíturnar frá þeytið afganginn af eggjunum saman við sykurinn, þeytið vel á hæsta hraða, bætið svo vanillu út í ásamt rommkúlunum. Hrærið rjómann og hellið svo rommkúlublöndunni varlega út í með sleikju og blandið vel. Stífþeytið eggjahvíturnar sem voru afgangs og blandið út í. Það má sleppa því að þeyta þessar tvær eggjahvítur sér en þetta er gert til að fá ísinn léttari. Setjið svo í form og frystið í sólahring. Einnig má skreyta með súkkulaði, t.d bræða súkkulaði í vatnsbaði og sprauta í ýmiskonar mynstur á smjörpappír og frysta með ísnum svo þegar ísinn er tilbúin er skrautinu stungið í hann.