Lax með mangosalati og jógúrtsósu

  • 160 g lax
  • 1 dós Jógúrt
  • 2-4 skeiðar eftir smekk Mango chutney
  • 50 ml Extra virgin ólífuolía
  • 1 rif Hvítlaukur
  • ½ stk. Fínt saxað kjarnhreinsað chilli
  • 1 stk. Laukur
  • 1 stk. Safi úr einum lime ávexti
  • 1/5 búnt Nokkur lauf ferskt kóríander
  • Salt og pipar
  • 1 stk. Mangó
  • 1-2 stk. Sætar kartöflur
  • 1 stk. Papríka


    1. Flakið, beinhreinsið og skerið fituna af laxinum. Steikið öðrum megin á pönnu.
    2. Blandið saman jógúrt og mango chutney.
    3. Skerið mangóið ásamt lauk, chili og hvítlauk. Öllu blandað saman við ólífuolíu, papriku og léttsoðnar sætar kartöflur. Kryddað með fersku kóríander og salt og pipar eftir smekk.