Súkkulaðikaka án eggja

  • 4 dl hveiti
  • 3 dl sykur
  • 3 msk. kakó
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 2 tsk. vanilla
  • 1 dl mjólk
  • 1 dl bráðið smjörlíki
  • 1 dl sjóðandi vatn


Blandið saman öllum þurrefnunum og vætið með bræddu smjörlíkinu, mjólkinni og sjóðandi vatni. Hellið deiginu í vel smurt mót eða litla ofnskúffu. Bakið kökuna við 175 C í ca. 30 mín.